Kría og Nýsköpunarvika – 17. maí 2022
Kría – sprota- og nýsköpunarsjóður heldur í samstarfi við Nýsköpunarviku viðburðinn „Kría hefur sig til flugs“. Fjallað verður um stofnun Kríu og starfsemi sjóðsins. Í kjölfarið verða pallborðsumræður þar sem rýnt verður í fjármögnunarumhverfi sprotafyrirtækja á Íslandi – staðan nú og hvert við stefnum. Að loknum erindum og pallborðsumræðu verður boðið upp á léttar veitingar. Sjáumst í Grósku (Bjargargata 1, 102 Reykjavík) þann 17. maí n.k. klukkan 16:00. Viðburðinum verður einnig streymt.