Umsóknarferlið og skilyrði
Með vísan til laga nr. 65/2020 um Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóð, reglugerð nr. 255/2021, og starfsreglna stjórnar, er hér með auglýst eftir umsóknum frá sérhæfðum sjóðum um fjárfestingu frá Kríu –sprota-og nýsköpunarsjóði. Frekari upplýsingar um skilyrði er að finna í 5. gr. reglugerðar 255/2021 um Kríu – sprota-og nýsköpunarsjóðs.
Vakin er athygli á breytingum sem gerðar hafa verið á reglugerð nr. 255/2021 um Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóð sbr. reglugerð nr. 1408/2022 og auglýsingu um breytingu á starfsreglum stjórnar Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóðs sbr. auglýsingu nr. 1409/2022.
Þeir sérhæfðu sjóðir sem telja sig uppfylla skilyrði Kríu þurfa að sendatölvupóst á umsoknir@kriaventures.is til þess að nálgast umsóknareyðublað og frekari gögn frá sjóðstjóra.
Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl 2024.
Frekari upplýsingar um umsóknar- og fjárfestingaferil Kríu 2024
Skilyrði fyrir þáttöku
Fylgigön með umsóknum
Stjórn og sjóðstjóra Kríu er heimilt að óska eftir frekari upplýsingum og fylgigögnum frá umsækjanda til að gera stjórn Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóðs kleift að ákvarða um þátttöku sjóðsins.